Tæknisæðing
Tæknisæðing er einfaldasta formið af tæknifrjóvgun. Aðeins er hægt að framkvæma tæknisæðingu ef eggjaleiðarar eru opnir.
Við tæknisæðingu eru sáðfrumur, annað hvort frá maka eða gjafa, undirbúnar á rannsóknarstofu og síðan settar inn í legið í gegnum leghálsinn með þunnum og mjúkum plastlegg. Meðferðin er framkvæmd í tengslum við egglos, annað hvort í náttúrulegum tíðahring eða eftir væga örvun eggjastokkanna. Mikilvægt er að tímasetja meðferðina vel og fylgjast náið með egglosi til að hámarka líkur á þungun.
Tæknisæðing getur verið góður kostur fyrir einstaklinga eða pör sem eiga erfitt með samfarir og getur einnig hentað yngri pörum sem hafa ekki verið að reyna lengi að verða þunguð.
Fyrir samkynja pör og einhleypar konur er tæknisæðing með gjafasæði oft fyrsta meðferðarúrræði og árangur af slíkri meðferð er almennt góður.
Tæknisæðing hentar síður pörum sem hafa reynt að verða þunguð í langan tíma án árangurs. Við óútskýrða ófrjósemi er árangur oft betri með glasafrjóvgun (IVF) en tæknisæðingu og því getur verið ráðlegt að fara beint í slíka meðferð.
Bókaðu tíma hjá einum af sérfræðilæknum okkar í gegnum Noona, með tölvupósti á reykjavik@livio.is eða í síma 430-4000.
Sérfræðilæknar Livio
Snorri Einarsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum og hefur starfað við ófrjósemislækningar frá árinu 2006. Hann hlaut viðurkenningu í ófrjósemislækningum sem undirsérgrein árið 2012, lauk doktorsprófi 2021 og er jafnframt kennari við læknadeild Háskóla Íslands.
Tinna Baldvinsdóttir er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum. Hún lauk sérnámi við Sahlgrenska háskólasjúkrahúsið í Gautaborg og varð sérfræðingur árið 2016. Eftir það hefur hún sérhæft sig í sónarskoðun og fósturgreiningu samhliða störfum sínum við fæðinga- og kvensjúkdómalækningar.
Þorbjörn Have Jónsson er sérfræðingur í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum með greiningu og meðferð frjósemisvandamála sem sitt aðalstarfssvið.